Bjarnarfjarðará er sjóbleikjuá í Bjarnarfirði á Ströndum, um 35 km akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið er um 7 km með 25 merktum veiðistöðum. Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Bjarnafjarðará er ein eftirsóttasta sjóbleikjuá landsins og þar veiðast stundum laxar. Veitt er á fjórar stangir í neðri hluta árinnar sem hér er fjallað um. Veiðitímabil er frá 20. júní til 20. september og veitt daglega kl: 07:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00 (1. jún. – 20. ág.) 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00 (21. ág. – 31. ág.) Leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spún. Gott aðgengi er að flestum veiðistöðum. Ekki er veiðihús við ána en Hótel Laugarhóll býður upp á góða gistingu við árbakkann. Þar er sundlaug, heitur pottur og veitingasala. Tjaldsvæði er einnig við Laugarhól.