Bjarnarfjarðará á Ströndum

Bjarnarfjarðará er sjóbleikjuá í Bjarnarfirði á Ströndum um 35 km akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið er um 7 km með 25 merktum veiðistöðum. Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Bjarnarfjarðará er eftirsótt sjóbleikjuá og þar veiðast stundum laxar. Veitt er á fjórar stangir í neðri hluta árinnar sem hér er fjallað um.  Veiðitímabil er frá 20. júní til 20. september og veitt daglega kl: 07:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00 (20. jún. – 20. ág.) 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00 (21. ág. – 20. sept.) Leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spún. Gott aðgengi er að flestum veiðistöðum.  Ekki er veiðihús við ána en Hótel Laugarhóll býður upp á góða gistingu við árbakkann.  Þar er sundlaug, heitur pottur og veitingasala og einnig gott tjaldsvæði.
Sjá kort og loftmynd á google maps hér

2 svör to “Bjarnarfjarðará á Ströndum”

  1. Hörður Olavson Says:

    Veiðileyfi 2023 eru seld á Veiðitorgi – sjá https://bleikja.net/about/veidileyfi/

  2. Hörður Olavson Says:

    Flóðatafla fyrir Hólmavík:
    http://tbone.biol.sc.edu/tide/tideshow.cgi?site=H%F3lmav%EDk%2C+Iceland

Færðu inn athugasemd